Færsluflokkur: Bloggar
31.1.2016 | 16:53
Verðlag og vaðmál II
Breytingar á atvivvuháttum og viðskiptum á Íslandi (á 13. og 14. öld ) er meginskýring á verðbreytingum feitmetis og skreiðar gagnvart vaðmáli. Sítat, fHelga Þorláksson.
Drýpur regn á dökka jörð
dulda þræði vef ég,
fingur skjálfa en skuldarband
og skyttu bæði hef ég;
telpukorni í tímans neyð töfraklæði gef ég.
Brot: Ólafur Jóhann Sigursson.
Sumir báru silki og skrúð
sópuðu allt úr kaupmanns búð
aðrir gengu á hákarlshúð
og héldu á beining sinni,
eldurinn undan hófum hraut
þá hofmannsliðið reið á braut,
mál er að linni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2016 | 13:54
Hreytur
Lesrýni Magnúsar lagabætis, kaþólskur kóngur, Sturla Þórðarson, Íslendingasaga, dygð, lestir, sáluhjálp.- Leiðarminni. Helgi Þorláksson sjötugur.
Vaðmál og verðlag. Vaðmál í utanlandssverslun og búskap íslendinga á 13. og 14. öld. Viðskipti, venjubundin voru sakir skorts miðuð við að útvega nauðsynjar; voru hluti af sjálfþurftabúskap og lutu vafalítið föstum venjum um hlutföll og verð eða jafngildi.
Mannfræði - og hagfræðihugtök.
Gemeinschaft, fjölskyld.
Gesellschaft, félög, fyrirtæki.
Reyndarhyggja, markaðshyggja.
Bloggar | Breytt 28.1.2016 kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2015 | 14:02
Mynd, krummaból
Styrmir hreggi úr steinnösum,
tinda tiginna,
þá geisli fránn, gullnum sporum,
snæjó snöggan knýr.
Þorsteinn Valdimarsson, sonur Erlu, skáldkonu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2015 | 15:28
Jólakveðja
Heilagur andi hvert eitt sinn
hefur það kennt mér bróðir minn;
lífsins krydd ef lítið finn,
að leggja það ekki í kistur inn.
Gleðileg jól
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2015 | 15:23
Drastik
Veðurannáll frá ómunatíð, Mannfækkun af hallærum, Hannes Finnsson. Ísöld, hlýjviðrisskeið, litla ísöld. Sjálfvirk stilling. Kaldviðrisskeið, áframhaldandi kuldaskeið, mínus tværgráður, mínus fjórar. Hvað ef eyðimerkur jarðar sem í kjölfar breytst veðurfars gróa upp á nýjanleik?
Er ekki ofdirfska manna að ætla sér að stilla af veðurfar, sé til þess litið, að veðurfar hefur tekið ógnar breytingum í aldanna rás? Hvort heldur kólnun eða hlýjnun? Hver segir að gróandinn geti ekki tekið sér bólfestu á eyðimerkursvæðum? Raunar lítil huggun fyrir olíuríki heimsins samfara verðlækkunum og minnkandi eftirspurnar. Drastík. Skógarhögg, villidýradráp, sóðaleg námuvinnsla. Kína þarf að glíma við geigvænlega mengun, ná tæpast andanum. Eitrun mengun, drullum sull og sullum drull.
Valda neðansjávargos á Atlandshafshryggnum og uppstreymi koldíoxíðs úr milljónum loftventla víða í höfunumm súrnun hafsins og lofthjúpsins?
Hvað með andardrátt allra fiskanna? Hvað með sveppagróður og bakteríur?
Hvað sagði skáldið við skáldbróður sinn úti á tröppum í draumi: hvernig væri að starta logni?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.11.2015 | 16:19
Ógnarbíldur
Upphaf Hrafnkelssögu Freysgoða. Það var á dögum Haralds konungs hins hárfagra, Hálfdánar sonar hins svarta, Guðröðar sonar veiðikonungs, Hálfdánar sonar hins milda og hins matarilla, Eysteins sonar frets, Ólafs sonar trételgju Svíakonungs, að sá maður kom skipi sínu til Íslands í Breiðdal, er Hallfreður hét. Það er fyrir neðan Fljótsdalshérað. Þar var á skipi kona hans og sonur er Hrafnkell hét. Hann var þá fimmtán vetra gamall mannvænn og gjörvilegur. Hallfreður setti bú saman. Ógnarbíldur: skelfir, grýla. Sjá Orðabók menningarsjóðs.å Landnáma. Eysteinn meinfretur Álfsson nam lönd Bálka og Bersa goðlausa við austanverðan Hrútafjörð, en þeir feðgar fluttu sig suður í Borgarfjörð, í Langavatnsdal. Kona Bersa hins goðlausa var Þórdís, úr Hítardal, dóttir Sæunnar, dóttur Skallagríms. Arngeir Bersason og Þórdís voru foreldar Björns Hítdælakappa, en Björn vandi mjög komur sínar í Hjörsey (?) til Oddnýjar eykindils. Hallfreður vandræðaskáld Óttarson gisti á sínu ferðalagi hjá Galta bróður sínum á Hreðavatni. Hreða, hrýðja...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2015 | 15:11
Skýtur þá skökku við
Grunnvatnsstaða
Hvort ráða megir rökum dýrum
þótt rofin deili grið kosti.
Á djúpu C-i drynur ýtum snjöllum
daggarhylur tær svo ymur í fjöllum.
JB
Fagrar heyrði ég raddirnar...
Rís á skjáinn röðull sljór,
ríslar dögg á stráum;
úlfur gapir ýfir sjór
eykt á kufli bláum.
JB
Ísl. alfræðibók.
Hermes: grískur guð, sendiboði guðanna; sonur Seifs og Maju; vísar sálum dauðra til dánarheima, verndar búpening og eykur frjósemi hans; ennfremur guð þjófa, vegfarenda, kaupsýslu og málsnilldar; oft sýndur með gullinn staf er tvær slöngur hlykkjast um, vængjaða skó og barðastóran hatt. Rómversk hliðstæða Hermesar er Merkúr.
Frelsi; fylgir ýmist böl eður blessun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2015 | 14:30
Kvarði, Díalektískur skali
Isaac Newton (1642- 1727), John Locke (1632 - 1704), George Berkley (1685 - 1753), lýstu upp innanhol skúmaskot jarðar. Nýir tímar í vændum. Tómas Róbert Malthus (1766-1834), Davíð Ricardo (1772 - 1813). Hrakspá þeirra að matvælaframleiðsla héldi í við fólksfjölgunina.Bryan Magee. Jón Guðna.
Gamli Gráni
Heimsálfurnar sjö hann sá,
hinar fjórar aldrei fann;
fallegur er hann framaná
og fyrir aftan líkamann.
Skáldin, 20. aldar skáld, bresk.
Graham Greene, Bernard Shaw, Chesterton, Auden, T.S. Eliot (kastaði bölsýninni, klassíkker. Án hrísmagi, Karítas án titils; var höfundur Laxdælu kona?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2015 | 14:28
Reki
Sacred and Secular Scriptures A Catholic approch to Literature.
Höf Nicholas Boyle. Útg. 2004; samtímis í Bretlandi og USA.
Gjörla þekki ég Gvöndarklett
þótt gamall yrði.
Sá hefur lengi steinninn stirði
staðið í miðjum Borgarfirði.
Höf. Siguður Þórðarson Hornfirðingur, f.1887
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2015 | 18:21
Jarðleg gifta
Homosexual og maskúlín, heterosexual og feminin. Moby - Dick í kjölfar Fásts. Great Gatsby Fitzgeralds, magískur veruleiki. Helgun, mögnun, göfgun. Frelsi; blessun, bölvun.
Útvaldra guðs svo gleðjist geð
gestaboð er til reitt,
kláravín, feiti mergur með
mun þar til rétta veitt.
Jeffrey Hart: Smiling through the cultural catastrope. 2001.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)