Skýtur þá skökku við

 Grunnvatnsstaða

Hvort ráða megir rökum dýrum

þótt rofin deili grið kosti.

Á djúpu C-i drynur ýtum snjöllum

daggarhylur tær svo ymur í fjöllum.

JB

 

Fagrar heyrði ég raddirnar... 

 

Rís á skjáinn röðull sljór,

ríslar dögg á stráum;

úlfur gapir ýfir sjór

eykt á kufli bláum.

JB

 

Ísl. alfræðibók.

Hermes: grískur guð, sendiboði guðanna; sonur Seifs og Maju; vísar sálum dauðra til dánarheima, verndar búpening og eykur frjósemi hans; ennfremur guð þjófa, vegfarenda, kaupsýslu og málsnilldar; oft sýndur með gullinn staf er tvær slöngur hlykkjast um, vængjaða skó og barðastóran hatt. Rómversk hliðstæða Hermesar er Merkúr.

Frelsi; fylgir ýmist böl eður blessun. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband