28.10.2012 | 15:01
Vetur genginn í garð
Vetur hefur tyllt tá á háum hælum, í döggvaðan syfjulegan garðinn. Fuglar hófu söng í birtingu, furðuðu sig á afgangsberjum slúta fremst á greinum trjánna. Kettir glottu við tönn, bærðu lítið á sér.
Ókyngreindur blossi, hrammur, Neró keisari í Róm á fyrstu öld, hollvættur, lýruleikari, verndarvættur, vökustaur, yfirhilming, hversdagsglit. Til hvers voru hrútarnir skornir?
Til að hyggla sjálfu sér, grettu, vipru; engum smáhégómaskap? Kannast skáldin við gimbilinn? Og hvað með hramminn, skattgreiðendur Evrópu, alþjóðleg auðfélög, eigið aflafé?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2012 | 17:01
Vinningslíkur á brostnum grunni
með miklar, liðugar og fjölhæfar gáfur,
en mjög örlyndur, og lítill fjárgæslumaður,
er mitt á meðal vor,
karrlmenni, ókingreindur blossi orðræðunnar vegna
undir skörðum mána, miklast af eigin skini,
neónljósa;
kemst hann eða hún eða það, þau og þá bæði í
vinningslið á Broadway, á bylitngarplanið
í Havanna sé vilji til þess, í geimverufansinn í höll heyr og endema,
sljóleika og vímu, verðlaunasirkusa hist og her
hjálpa okkur að gleyma hvaða við erum halló, púkó, skrítin
og hvað við getum verið flott, eins og hin
og öllu er óhætt, látið okkur dreyma, látið okkur múruð sjá
lífið í réttu ljósi, ljái okkur hugkvæmni þjóðhagslega óhagkvæmum og
enginn hefur efni á að verða útundan ólæs, grípa hattinn, afla fjár, hreyfa sig, lesa í sporin því sé dans nógu vel stiginn fá gamlar múmíur jafnvel flíkað sínum eldforna dáindis þokka, sumar gengið með í níu mánuði. Og hvort stendur launaþrælum nær áður en stigið er inn á svið hælbrjótur eða öskustó, framleiðslugreinar og verkin okkar, reikningslist, vafningar úr engu, sköpun, auglýsingar, áróður, hrat: háski, stórfúlgur, brátt á sveimi þó um stund lúri í örum vexti og færri og færri og fleiri og fleiri inn á sviði eða utan neyti færis á Kólosseum.
Sjálft Kólosseum dregur nafn sitt af risastyttu Nerós keisara og lýruleikara, sem stóð á firstu öld eftir Krist í grennd við leikvanginn sporöskjulaga; verndarvættur leikja og listgjörninga: innmúruð útskorin óhljóð, hávella úr múr, frárennslislögn húsfélags í sundur, ertandi hvinur í eyra, lágstemmdar drunur, örbylgjukliður handanheims hátæknisjúkrahúss í grennd, gretta, með túður og ketilhús háskólasjúkrahúss tvístrast út af deild viðbragða þróunar og fróunarsviðs, skerandi skaðræðisöskur hljóðkútslausra tryllitækja snar lina tök og sellóið í græjunum. Örbylgjukliður handanheima, handan Edens, dálítið austar e.t.v...
Sandaura´s Blog A constant non stop low frequency Hum heard in my home.
Auk þess legg ég til að Skeifan verði lögð í rúst en Grensáshúsin fái að standa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2012 | 15:46
Stjórnarskrá Íslands 20. okt. 2012
Fólk vant að virðingu sinni ruglar tæpast saman orðaleikjaglensi úr potti Williams Burroughs og marktækri atkvæðagreiðslu um stjórnarskrá, eða hvað? Þeim, sem gert er að sitja nánast á svikráðum við sjálfa sig á kjördag, við eigin dómgreind og forsjá, ásamt einu skráðu grunnreglu samfélagsins, þeir velkjast ekki í vafa, láta ekki sjá sig á kjörstað. Hinir, sem láta skeika að sköpuðu, kjósa og vænta mikils, grilla endurfædda stjórnsýslu, sem ráða muni fyrirfram farsælum lyktum í hverju máli, eða svo gott sem; allt í krafti málamiðlunargjörings rótara nývakinnar stjórnarskrár, í hasar upphlaupi illa samrýmdrar stjórnsýslu. Hver vinnur hverjum hvað, hvar og hvenær?
Sérfræðingar á ólíku sviði, t.d. eyrnalæknar og hljóðverkfræðingar tala ekki að marki saman, þótt prinsipp þeirra skarist í óleystum almennum vanda, þeim opinberlega falinn. Þeir vinna ekki með hljóð í þræl- hljóðmenguðum heimi rafknúinnar hátækni. Hvorki á lágtíðnisviði eða hátíðni. Þeim nægir kolúreltur opinber kvarði, sem ákvarðar hvað sé hljóð, hávaði, óhljóð og rukka. Almannahagur; sætur biti í munni málpípa: tómur fagurgali.
(Sandaura´s Blog A constant non stop low freqency Hum heard in my home)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2012 | 11:53
Stigið hljótt fæti hjá sofenda garði
Hver var hann þessi maður, sem nefndur er bókbindari, vefari og vélstjóri í manntölum á Héraði fyrir 1900 auk þess að sjóða niður kjöt fyrir góðan granna Sörla Vigfússon bónda á Arnheiðarstöðum, eins og segir í bréfi til Tryggva Gunnarsson kaupstjóra? Fæddur 22.jan. 1849, dáinn 11.nóv. 1889 (Múlaþing 16. tölublað 1988). Magnús Þórarinsson (!847-1917) setti upp tóvinnustofu á Halldórstöðum í Laxárdal, Þingeyjarsýslu 1883-84. Halldór Jónsson á Rauðamýri á Langadalsströnd við Djúp kom upp vatnsknúnum vélum á Nauteyri á sama tíma. Þar var veitt saman heitu og köldu vatni til að tryggja rennsli vetur og sumar. Þessir voru þó sporgöngumenn hinna, sem settu upp tóvinnustöð ásamt stíflu 1880 á Ormarsstöðum í Fellum á Héraði, þó annað segi í uppsláttarbókum. Lyktaði þrautum þessa góða fólks í vilpu Kárahnjúkavirkjunar, beintengd á línulögn alþjóðafjármagnsins við úðabrúsatrektina oná fjörðum? Tilvist tóvinnustofanna er að réttu lagi samofnari heimavinnslu í Múlasýslum og í landinu öllu fyrr og síðar og verkstæðum Álafoss í Mosfellssveit 1896, Gefjun á Akureyri 1897, Iðunn í Reykjavík 1903, sem og ullar og tóvinnu okkar daga.
Hver var maðurinn: Magnús Einarsson vélstjóri síðar úrsmiður og kaupmaður á Vestdalseyri í Seyðisfirði og síðar í Færeyjum, haltur eins og Stefán frá Hvítadal, og vélstjóri á Ormarsstöðum; Tryggvi Gunnarsson kaupstjóri og timburmaður, bankastjóri og þingmaður, Eiríkur Magnússon í Cambridge á Englandi og frú Sigríður Einarsdóttir dúkakaupmaður; Þorvarður Kerúlf Andrésson, læknir, þingmaður og bóndi á Ormarssröðum, Guðmundur Hallgrímsson frá Skörðum í Reykjahverfi, var t.d. í þjónustu amerískra hvalfangara á Vestdalseyri í Seyðisfirði sumarið 1867, fór síðar í siglingar og kona hans Dórótea Lovísa Andrésdóttir, sem kom eftir hannyrðanám í Kaupmannahöfn 1855 með fyrstu prjónavélina til Austurlands. Þau hjónin bjuggu í Lindarseli í Jökuldalsheiðinni. Ólöf Dórótea dóttir þeirra missti á fyrsta ári móður sína, og ólst upp ásamt Önnu Jóhannsdóttur frænku sinni hjá móðursystur þeirra, Jóhönnu Kerúlf Andrésdóttur á Skriðuklaustri, Ólöf flutti fullorðin til Ameríku. Andrés Hermann Kerúlf á Melum hafði traust tengsl við Ormarsstaði. Dóttir hans Arnbjörg giftist Jóhanni Frímann Jónssyni 1876, en lést af barnsförum á Ormarsstöðum í janúarlok og litla stúlkan hennar dó nokkrum dögum síðar. Þau hjónin höfðu áður misst yngri tvíburann 1878, litla bróður Önnu Jóhannsdóttur, ömmu minnar. Sölvi Magnússon bjó á Grunnavatni í Jökuldalsheiðinni í 9 ár, síðar í Svínadal í Kelduhverfi, á Grímsstöðum á Fjöllum, í Reykjahlíð í Mývatnsveit, loks í Svartárkoti í Þingeyjasýslu og síðast á Kaupangi í Eyjafirði. Jóhann Frímann Jónsson systursonur Sölva var fæddur á Sævarenda í Loðmundarfirði og flutti með foreldrum og systkinum í Jökuldalsheiðina 1861, fyrst í Veturhús og í Heiðarsel 1863 og þar bjuggu þau til 1875. Foreldrar hans voru Jón Sveinsson frá Seljamýri í Loðmundarfirði og Sólveig Magnúsdóttir ættuð úr inndölum Fljótsdalshéraðs. Fjölskylda Jóhanns Frímanns hraktist úr heiðinni undan Dyngjufjallagosinu 1875 og flutti vestur um haf 1882, öll nema Jóhann Frímann. Varð ekkill 1880 heima á Ormarsstöðum sama ár og vefstóllinn var gangsettur. Móðursystir hans Katrín hafði þá, nýorðin ekkja, flutt á undan vestur, 1878, með börn sín tvö Pétur og Sigríði. Magnús bróðir hennar flutti brott sömu leið 1879, en systir þeirra Elísabet fylgdi líkast til foreldrum sínum 1882 út í móðu og mistur hinna ókunnu landa.
Síra Stefán Sigfússon var sonur hjónanna Sigfúsar Stefánssonar bónda og smiðs á Skriðuklaustri og Jóhönnu Andrésdóttur frá Melum, móðursystur og fósturmóður munaðarleysingjanna Ólafar Dóróteu og Önnu Jóhannsdóttur. Síra Stefán var sonarsonur síra Stefáns Árnasonar prófasts á Valþjófsstað og bróðir Jóru gömlu, heimiliskonu seinni æviár sín á Bessastöðum í Fljótsdal hjá frændsystkinum sínum, hjónunum Jóni Jónassyni og Önnu Jóhannsdóttur, en Jón lærði smíðar hjá frænda sínum (Vefaraætt) á Klaustri. Þau hjónaleysin kynntust í vistinni á Klaustri og áttu saman um sína daga 19 börn. 14 komust til fullorðinsára, elsta fætt 1898 yngsta 1924. Síra Stefán hraktist úr prestskap 42 ára sakir drykkjskapaákúru runna að almannarómi undan tungurót síra Jóns Bjarnasonar í Winnipeg, þá gestkomanda á heimalandinu. Síra Stefán flutti til vesturheims 1901 og dó þar 1905. Ritaði merka ritgerð um dýrasjúkdóma, sem munaði talsvert um, þá hann bjó á Hamri í Hamarsfirði og aðra grein um glímu, enda vel glíminn sjálfur, sem birtist í Skírni aldamótaárið 1900. Las og mælti á 5 tungumálum auk þess að kunna latínu mæta vel. Var hneigður fyrir fræðistörf og íhugun að sögn Rögnvalds Péturssonar unitaraleiðtoga vestra.
Páll Pálsson í Þingmúla var einn af forkólfum Pöntunarfélags Héraðsbúa. Honum er þannig lýst af samtímamanni, að hann hafi verið atgervismaður, skemmtinn og glaðvær, hafði miklar, liðugar og fjölhæfar gáfur, en var mjög örlyndur og lítill fjárgæslumaður. Væri þessi misserin nokkur vanþörf á einum slíkum eða fleiri mitt á meðal vor.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2012 | 14:37
Tinfiskur
Samfylking óstaðbundinna og vel upplýstra nútímamanna, sem fyrirverða sig fyrir óbreytt bændafólk í baklandi sínu, fólk fyrir tíð hátæknialdar, gerir það annaðhvort af kolúreltum útlenskum óvana, háevrópskum, háborgaralegum og þess vegna smáborgarlegum, eða hreint og beint af kjánaskap. Átyllan er hjátrú og fáfræði, meint fákunnátta fyrritíðar fólks um veltilkeyrð afrek og úrræði tækni og vísinda 20. aldar. Þá breytir og nokkru hið síffellda flaður skólaðra jafnt og hinna utaní skúrgoð tíðarandans, sem blæs hinum nýja og margeflda p-pillumanni leiktækjaversins óvenju þrútinn móð í brjóst, í ökla og eyra. Margan skortir sárlega viðmið til að standast fár síbyljunnar og straumköst merkimiðasöluvöruheimsins. Viðmið frá fyrri tíð getur gert útslagið.
Lamandi forheimskun auglýsinga- og áróðursfárs, sem smýgur í merg og bein varnarlítilla breytir þeim í eftiröpun sína, neytendur, gljátíkur graðkandi í sig hrati af borðum þrælastía heims. Gakk þú með sjó og sittu við eld; virtu dýrin og plönturnar, loft lög og láð. Biddu fremur bæna en stóla á grínið, pillurnar, sleggjudóma. Hlutlægni er afstaða, kollektíf, svo hjálpi þér...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2012 | 17:57
Iðin við kolann framandi heima þokuklakka óstaðbundinna
Hver og einn í sínu ástarhreiðri heima keppir við kræfustu vændishús á markaði allra gegn öllum en sumra saman eins og á róló barnanna eða í gryfju Jóakims frænda, sýsla með leikföng, ekki orð, orðin meiða, leikföng leiðans, lepjandi latte, véfengja orðræðuna, (munnsöfnuðinn), ögrandi án þess að taka neinum pústrum, smjúgandi um allt rafrænt, herja glatt herjans mikið, iðin við kolann, slefandi gúddí gúddí gú
Undan norðangörðum og öskufalli, úr fylgsnum landvætta að heiman úr blánni, frá klettóttri strönd, út vestur á víðar lendur Trylltafáks og maríutása. Óyggjandi spurnir um afdrif foreldra og barna engar borist ástvinum. Lengi mun von á einum, eða fleiri handan um haf að rýna í mistrið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2012 | 16:56
Þegar öll kurl koma til grafar
Mýrarauði, kolagrafir, belgur, blístra, blásturjárn. Rauðablástur er forn aðferð til að vinna járn úr mýrarauða, og barst hingað til lands með landnámsmönnum. Járn var haft í sláttuljái, bátasaum, vopn, skeifur o.fl. Minjar eftir rauðablástur, smiðjur og gjall hafa fundist víða um land, við marga fornbæi.
Við rauðablástur þarf viðarkol, sem kostaði stórfellda skógareyðingu. Orðatiltækið þegar öll kurl koma til grafar tengist beint kurlun trjágreina og kolgrafir. Trjáviður var sóttur í skóginn eftir sláturtíð á haustin. Trjástofnarnir voru nýttir mest í húsrafta og til brýnna smíða, í amboð t.d. hrífutinda o.fl., trjágreinarnar voru kurlaðar til kola og rauðablásturs og til dengingar sláttuljáa, limið til að svíða hausa og lappir, börkurinn til litunar. Blásturjárn var löglegur gjaldmiðill á fyrstu öldum Íslansbyggðar.
Geta má nærri, hversu óhemju mikið að skógarviði, niðurhöggnum og brenndum til kola, hefur þurft t.d. til að bræða, drepa og reka svo sem 50 kg. af járni úr mýrarauða þangað til að það var orðið hentugt til smíða. ( Sagnir og þjóðhættir Höf. Oddur Oddsson á Eyrarbakka Ísafoldarprentsmiðja HF Reykjavík 1941). Til þess að smíða við einn einasta venjulegan sláttuljá (samsoðinn úr ásmundarjárni), þurfti eina tunnu af góðum viðarkolum.(Sami)
Ásmundarjárn (480 merkur, ásmundur: mælieining: 1 járnfat) fluttist með Hansaskipum til Íslands á !5. öld. Eftir að steinkol tóku að flytjast til landsins voru viðarkol samt eftir sem áður notuð til dengingar slátturljáa á sumrin, því steinkolin þóttu óhæf sökum of sterks og ójafns hita og reyks. Árið 1867 komu Torfaljáirnir skosku til landsins, með í trússi Torfa Bjarnasonar, búnaðarfrömuðs og skólastjóra í Ólafsdal, og höfðu náð fullri útbreiðslu um landið 1874. Gömlu samsuðuljáirnir, ásmundarjárnin hurfu þar með úr sögunni og með þeim sú denging sláttuljáa, sem þurfti viðrkola með.
Furðu gegnir að ein einasta hrísla skuli hafa uppi staðið hér á landi um aldamótin 1900 og blakað laufi í þýðum blænum, engu síður en eftir eyðingu frumskógarins í Kína, og víðar. Í Kína var vissulega gengið hraustlegar fram en hér á landi, frumskógurinn beinlínis lagður að velli um allt ríkið með öllum kostum hans og kynjum, fílum og hlébörðum, meintum þjófum og illþýði í nafni keisarans og stjörnuspámanna hans. Þar þræddi Búdda götur Taó og mildaði bros skálda. Kínverjar hafa fengið að kynnast tröllauknum hamförum, aurflóðum og vatnavöxtum í kjölfar sinnar skógareyðingar. Prísa sig ekki allir sæla með sauðamjólk og ull í fat, sól í heiði og lækjarnið og fyrir löngu gengnir inn í mistur heillar eilífðar.
Bækur: The retreat of the elephants. An environmental history of China. Elvin. Þarf að panta.
Adorno: The Culture Industry, fæst á Skólavörðustígnum. Áhrifarík og framsýn greining, sem enn hefur sterka skírskotun.
Pólitískt vald og erótík, einkalíf og erótík, erótík og umskipti, langþráð og ekkert bólar á, mannréttindi og erótík, erótík og stundargaman, sönn hamingja, vakandi skynjun, skynsemi og tilfinningar, möguleikar mannsins, geta, sönn list, umskapandi, síður lýjandi breyta að öllu annars óbreyttu, allsmegandi skálda, hámenning, lágmenning, Kristur og heimur. Brýn umbreyting, flækjufótur borgaralegra himpigimpa, en þurfalinga munar mest í, en enn lengra út í bláma fjarskans, eftir því sem fleiri taka þátt í breytum og leik, eða hvað, hins magíska írafárs glens og glaums, DanseMacabre, til slævunar og sljóvgunar hins lýðræðislega meirihluta, sem hverjir tala hæst um að endanlega skuli ráða ráðum annarra og þeirra sjálfra? Þjófur og þjófafélög, líkt og erótískt kærustupar, soltin skræfa og tvær krákur á hendi hugsa einungis um sinn þrönga eiginhag, brauð og leiki, og þar dottar einhver með höfuð undir væng.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2012 | 15:37
Mærin og einhyrningurinn í Cluny
Regla Cisterciana, innvígðra og leikmanna, og nýjungar í landbúnaði og útbreiðsla þeirra í Evrópu síðmiðalda. Belgjurtir, hjólplógur, sáðskipti, vatnsmyllur, aukið matvælaframboð. Ullarvefnaður, búauðgisstefna, gotneskur stíll, aukin verslun. Efldara ríkisvald, vaxandi borgir; nýlendusöfnun, gufuafl tækni- og iðnbyltingar á s.hl. 18. aldar. Launaþrælkun uppflosnaðs sveitafólks í verksmiðjuvirkjum borga, breskur landher: enginn. Ríkisherir öflugri í álfunni, ekki lengur fjölþjóðlegar málaliðasveitir (s.b.r. Descartes). Öskrandi ljón á hverri þúfu. Jafnari þátttaka beggja kynja og barna í daglegu peningaharki. P-pillan kemur seinna til sögunnar; lífsgæðakapphlaup í algleymingi, múlinex á markaði, afþreyingariðnaður, herskálsífur vellur yfir almúga, bíó, popp, dóp, pólitískur áróður, keppnisíþróttir, kerfislægur sparðtíningur, á netinu, vefnum.
Slæfður fjölmiðlavaðall, áhyggjur fólks, stöðugar, hvort það sjálft sé betra eða verra en nýríkir og útlenskir, hvort útlönd séu yfirleitt til, og stórstjörnur bransans, betra eða verra en fyrrri tíðar fólk, svo eitthvað sé nefnt. Munu kynbætur með geimverum Hollywoodheima og harkara á MTV e.t.v. bæta um betur, er hálmstráið, og gulltryggja öllu fólki hamingjuríkara líf, líkt og John Stuart Mill, starfsmaður Austur-Indíafélagsins gaf ádrátt um á sinni tíð í nytjastefnu sinni að allir ættu jafnan rétt á. Blandað í svartan dauðann, Huang Nubo.
Rausnarlegt ljúflyndi sveitamanns eða konu þess vegna, viss smekkvísi, blandið klassískri upphafningu, malandi kvenmannsbelgur, pólitísk vissa þráhyggja, slefandi listunnendur og stundleg sæla fremjanda gjörnings. Tómas heiti ég Jónson halló og er ekki metsölubók en ekki að heldur bókarlaus, og það máttu bóka lesandi minn góður. Karl, sem lá fram á rúmskörina timbraður og fékk Skrattann í heimsókn, hastaði strax á skolla flaumósa að hypja sig, annars myndi hann berja hann í hausinn með Biblíunni. Svar kom um hæl: Þú átt enga Biblíu greyið. Sumum er ekkert heilagt, varla einu sinni til bráðabrigða, þá hvorki skoltur né klær. Virðingaleysið skal virt að metum mætra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2012 | 14:25
Útsær Einars Benediktssonar
1.
Til þín er mín heimþrá, eyðimörk ógna og dýrðar,
ásýnd af norðursins skapi í blíðu og stríðu.
Hjá þér eru yngstu óskir míns hjarta skírðar.
Útsær - þú ber mér lífsins sterkustu minning.
Ég sé þig hvíla í hamrafanginu víðu;
ég heyri þig anda djúpt yfir útskaga - grynning.
Ofsinn og mildin búa þér undir bránni;
þú bregður stórum svip yfir dálítið hverfi,
þar lendingarbáran kveðst á við strenginn í ánni,
en upplit og viðmót fólksins tekur þit gervi.
Hvort hefur hér mál, útsýnin eða skáldið? Sjá Matthías Viðar Sæmundsson.
Og til fróðleiks: Innan við helmingur norður- amerískra Indíána býr á fráteknu landi. Ef hvít kona giftist einum rauðskinnanum á svæðinu telst hún lagalega Indíáni á opinberu framfæri. Giftist Indáánakona af svæðinu hvítum manni telst hún lagalega hvít. Talning frumbyggja Norður Ameríku telst því af ýmsum ástæðum snúin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2012 | 21:22
Færri grensur, engin tabú
aukin fólska, minni karlmennska, meira ástleysi; ótt vakin girnd til barna. Og aukin mannréttindi- að því skal stefnt. Herbert karlinn Spencer hafður í hæstu metum, sósíaldarwinismi, framfaratrú, nauðhyggja, réttur hins sterka til að deila og njóta eigin styrks, eigin þrár, ástríðu sinnar eða fólsku og valds. Fáist betra bragð af skrokki þrautpíndrar bráðar, hvort heldur af svíni eða mannaket, er rétturinn tryggður aðnjótendum þó vart án allrar væntumþykju. Að lifa er að njóta, að lifa af nautninni. Að falla kylliflatur eða flöt fyrir þeim, sem í þaula nýtur, má happ heita allra, sem í hlut eiga. Tilfinningar og kenndir má endalaust móta og laga. Öfund, flöktandi peverssjónir og ótti, neind, aðhlátursefni, líkan til að keyra. Tjáning eða dauði.
Virðingaleysi og glettni beittustu vopnin, búfjárlíf uppfylling óska. Tilhleypingar réttlæta hvaðeina, sigur blekkinga, táls, lífsmark líf. Barnæskan biðsalur. Fegurð vellíðan. Skilningur: Verður ánægjunnar einnar vegna. Minni fólsku! Allir lifi sjálfum sér! Þráhyggjan kynferðisleg og lítilsvirðing þeirra, sem formælendur eiga fáa, hvort heldur of feitra, beyglaðra, einhvern veginn öðruvísi eru sakir fólsku hafðir til upphafningar kostanna mæringjanna mestu! Tvíbent hrós til áréttingar eður háðungar, oftast tómt flaður.
Hópsálin tilneydd, rorrandi í eigin kolgrænu seyru, hæfir helst vel að njóta. Leiðrétting villa. Vellíðan ölvun, ölvun ánægja. Virðingarleysi hleypidómalausra leysir óværu skinhelgi og dóma úr viðjum. Niðurstaða, á einhvern óskýranlegan hátt hálfveiklað, en sammannlegt. Til hvers ætti hross að reigja sig upp á kvígildi í fardögum á vori, þótt snara megi út gjaldi, sonum og dætrum, mjólkurpeningi, í landaurum eða fríðu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2012 | 13:26
Ritúal
Ofsinn og mildin búa þér undir bránni. (E.B.)
Hjá þér eru yngstu óskir míns hjarta skírðar.
(E.B.)
Joseph G. Jorgenssen, (The Sun Dance Religion. University of Chicago Press 1972), greinir sameiginleg einkenni í kerfum athafna-og efnahagslífs heimsins. Kjarni pólitísks og efnahagslegs valds heimsbyggðarinnar er samþjappað í metropolis, heimsborgum, heimsborgir, samsafn minnihlutahópa, nýríkra fátæklinga, fjárfesta, kynskiptinga, eins og barnið sagði.
Fylgihnettir, hinar dreifðu byggðir sjá metropolis fyrir nauðsynjavöru, en neyta auk þess að hluta unninar vöru metropolis. Fylgihnettirnir, taglhnýtingar leggja því umtalsvert að mörkum til efnahagslífs tvíeikisins. En efnahagsleg og pólitísk völd þeirra, þau eru óveruleg.
Fólk á jaðri samfélaga er oftar markað vanlíðan, andlega og tilfinningalega, tvítyngdir standa oftar en ekki betur að vígi, á líka við norður-amerískra Indíána; en hinir, sem týna niður móðurmáli sínu og ganga galdri og fári metrópólis á hönd, valsa um í óeirð sinni e.t.v. á afþreyingarmiðlum, með klink í vasa, mennta sig flestir til þess eins að selja sig dýrar, lænur, linjur hjáguða, púkar á fjósbita; F. Scott Firzgerald, Jóhann Sigurónsson, hvor um sig í hjásetunni, eyrnamerktir Útsæ Einars Ben; o g Bjartsýnisljóðum Sigfúsar Daðasonar.
Er hart að játa að hér sé allt,
sem hugðistu dylja, á blóði nært.
Nýljóð eða Spjótalög á spegli?
Þorsteins frá Hamri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2012 | 20:44
Bíræfni
Tíðarandi, skæddur ljóri,
eyddra fóstra; hæstu sala,
himinsjóla lægstu kennda.
Sónarróp, fárbeita, í þögn bíræfinna.
Hvað líður baráttu kynjanna, launajafnrétti, jöfnun atkvæðisréttar heimsþorpsins, metropolis, þegar spurst hefur, að kvenréttindahreyfingin, eins og hún leggur sig, hafi nýlega flutt sig í heilu lagi inn á fjalagólf Samtakanna 78 með g-blett sinn í bróderaðri skjóðu. Aukaafurð, blessuð litlu vöggustofukrílin, hreppi jafnharðan og þau fá náðarsamlegast litið dagsins ljós, sess í biðröð ótilkeyrðra og því betri lífsgæða en hálfkátlegra samt, á framfæri og ábirgð hins, hins opinbera. Og í nafni friðarins. Á meðan fýkur í auðninni.
Læður, högnar, hani, hæna, hundar, tíkur, gimbill, gimbrar, folar, kvígur; naut og hryssur, ráðsett í Kama Sútru, dreissug á markaði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2012 | 15:31
Við rá og reiða hagsýnnar húsmóður
Betra er að vera barinn þræll, og það í Ódáðahrauni, en stríðalinn þjónn; bitinn ostur, vélstrokkaður, lyktsterkur, upp étinn í sturlunarmóðu fnæsandi graðneytis, hamhleypu til mannúðar-auka-vika, í rétt-eða-vitlaust-skipulögðu samfélagi. Apakynstofn í Kongó hafður til fyrirmyndar, innan kirkju sem utan; utan aldursmarka, losað um alla óþarfa spennu, alsæl, skapandi, mát - möguleikar, gróði, græðlingar, birgðir, stundir aflögu, kapút, höfuð, höfuðstóll.
Barnskrói á mótunaraldri, og hvaða foreldris sem er, lætur vart að sér hæða, lætur hvorki gabba sig né narra, snýst til varnar, sókn er besta vörnin, sækir sér stuðning hvar sem hann er að hafa, þó fáir eða engir málsmetandi forsvari erindið út í iðukastið undir alsjáandi orms í auga glákuapa, Skinnstakksins, sem geymir fúkkalyfjanna, skammtsins, sem spreðað er tvist og bast, andlausum sparðatýningi kastað á dreif, sem ýfir og æsir smá gárur m.a. í skjólu útikamars á torgi, í hjálendu skapandi menningarleysu, neytenda trylltra, tældra, trompaðra, lens.
Tekst að leika á alla blessuðu litlu perrana, börnin, ginna þau og villa, svo að einasta heill þeirra og tromp áskotnist þeim í bakhöndina, þegar fram í sækir, sú lukkan stærst og aleinasta blessun, þér heillum horfnir heims um ból? Glampar á nótur sálumessu í dúr og moll í vessum skepnunnar? Og fremst á einni kló. Sá sem þannig er skapaður af náttúrunnar hendi, en það er tilberinn okkar ekki, telst vart sakhæfur. Fremur puntlegri. Vegni þeim vel sem við þurfa að búa! Tilreiddir, filsneiddir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2012 | 14:57
Ofur-hetjuímynd tækni og vísinda
Markhópar, jafnt háir sem lágir, allir með toppgræjur, stungnir svefnþorni korrandi í breiðum torfum, rorrandi kynbombur, villibráð á torfundinni slóð. Svardagar þuldir, uhum-ræður mest sparðatíningur frísandi míkrafóndúllara; í baksal Artemisar, Aresar, Afródítu, Hefestosar áletrun: Hið fagra er satt: endanlegur sannleikur rafmagnað frygðragól. Norma Jean og Eyvindur, Halla og Joe DiMaggio. Hið fagra er satt- Bók Kristjáns Árnasonar frá 2004 þar sem finna má m.a. lýsingu á meistaratökum Sveinbjörns Egilssonar á kvæðum Hómers. Sést grilla í gára og sveipi á skildi Akkelesar borgrbrjóts gegnum loga diggitalsins.
Upphefst kveðandi:
Líneik veit ég lángt af öðrum bera,
létta hryssu í flokki staðra mera,
fagureyg með fimar tær
frísar hún hátt og bítur og slær.
Ó blessuð mær.
Kristilega kærleiksblómin spretta
kringum hitt og þetta.
(Nóbel-skáldið)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2012 | 15:48
Líneikin
Líneik og Salka Valka fjórða áratugar aldarinnar leið skjóta upp kolli í Fagrar heyrði ég raddirnar, þjóðkvæði og stef, Einars Ólafs Sveinssonar, 1974. Þorsteinar úr Bænum aftur í ljóðakveri HKL; hinn eini sanni - granni Málfríðar Einarsdóttur í Borgarfirði.
1.
Ef sumir vissu um suma/ það sem sumir gera við suma,/ þegar sumir eru frá,/ þá væru ekki sumir við suma/ eins og sumir eru við suma,/ þegar sumir eru hjá.
2.
Leiðist mér að liggja hér í ljótum helli;
betra er heima á Helgafelli
að hafa þar dans og glímuskelli.
Eignað draugi í Draugahelli undir Jökli öðruhvorumegin við aldamótin1600
3.
Ósabakki í Meðallandi (farinn af fyrir 1500)
Árni minn á Ósabakka er ekki frómur;
sannur er það seggja rómur,
síðan hann át úr hrútnum blómur.
4.
Lundur í Fljótshverfi (farinn af um 1400)
Lundakirkja er besta bú
berst í vatnaróti.
Hvar er sóknin hennar nú?
Hulin aur og grjóti.
5.
Ljós var loginn sá,
hinn væni
þar lundurinn brann hinn græni.
Fellur dögg á fagra eik í lundi.
6.
Ein væn,
lifrauð, laufgræn
reyniviðarhrísla stendur í miðjum Vaglaskógi.
7.
Múkahólar hjá Helgafelli.
Maðurinn á Múkahólum
mælti svo við prestinn sinn:
Guð gefi þér góðan daginn, karlinn minn!
8
Gömul rímnavísa:
Við eldinn sátu töfratröll
tekin voru að sjóða,
meinguð átu merarföll,
með ólátum höfðu sköll.
9.
Stef.
Allir kallar eru hér á gangi;
hlupu þeir upp á heiði,
búnir voru sem kettir.
10.
Rödd á glugga.
Liggur þú hér Ingjaldur einn í læstum skála.
Nú er sá kominn, sem geldur köppum kóngsins harðan mála.
11.
Skipin liggja hér við sand
þar er á fjöldi karla.
Dagur fagur prýðir veröld alla.
12.
Ungan leit ég hofmann
í fögrum lundi.
Skal ég í hljóði dilla þeim ég unni.
13.
Hýr mundi ég hlaðsól heitt unna þér,
ef þú vildir í dúninum dilla mér.
14.
Svo er hún fögur sem sól í heiði renni;
augun voru sem baldinbrá,
bar þar ekki skuggann á,
og er sá sæll, sem sofna náir hjá henni.
15.
Upp er komin tillitá og takt´á;
sjóvetlingur situr hjá og segir frá.
Ráðabrugg álfa.
16.
Hirði ég aldrei hver mig kallar vóndann:
heldur kyssi ég húsfreyjuna en bóndann.
17.
Það er nokkuð meingað mál
og múkavilla,
ég má ekki jómfrúnum dilla.
18.
Rýkur á Krossi, rýkur á Á,
rýkur í Frakkanesi,
Reynikeldu rýkur á,
rýkur á Melum og Ballará.
Bæir á Skarðsströnd.
19.
Grímsnes hið góða
og Gull-Hrepparnir.
Sultartungur
og svarti Flói.
20.
Þriðjudag í föstuinngang,
það er mér í minni,
þá á hver að falla í fang
þjónustunni sinni.
21.
Víðar er guð en í Görðum,
hann er líka í Grindaskörðum.
22.
Fram í runnin, meðan ég má,
mínum held ég plógi.
Ekki eru brunnin kolin smá
á Lundúna-skógi.
23.
Hóf er á öllu
nema hvílukossum einum.
24.
Þegar spóinn vellir graut,
þá eru´úti vorhörkur og vetrarþraut.
25.
Hjartað mitt er hlaðið kurt,
hvergi náir skeika;
með fótinn annan fór ég á burt,
fáir munu eftir leika.
26.
Eru í hrauni Ögmundar
ótalmargir þröskuldar,
gjótur bæði og grjótgarðar
glamra þar við skeifurnar.
Ögmundarhraun, Selatangar, Krísuvík.
27.
Gakktu í ána góðurinn minn,
það gerir biskups hesturinn.
28.
Psallarasöngurinn og hindarhljóð,
mörgum þykir meyjunum
mannsins kvæði góð,
psallarasöngurinn og hindarhljóð.
29.
Herrann skapaði loft og láð,
lýði og blómstrið fríða.
Sá var hagur, sem það kunni smíða.
30.
Gott er þeim sem glatt hafa sinni,
guð sé með oss öllum hér inni.
31.
Gullbúinn gimbill í grænkunni lá,
hleypur hann um hlíðarnar og hefur horn upp´á.
Faðir þinn er flekkóttur og móðir þín er grá.
Þegiðu fífilkollur, hver sem þig á.
32.
Hljóðgóðar hindur,
við hönd höfum fest,
þú kyssir þýðast
og kveður best.
33.
Ég skal gefa þér gull í skel,
ég skal gefa þér silki í stél.
34. Grímseyjarkarlinn.
Karlinn undir klöppunum,
klórar hann sér með löppunum,
baular hann undir bökkunum
og ber sig eftir krökkunum
á kvöldin.
35.
Tittlingur í mýri
tínir hann berin rauð,
kemur hann heim á kvöldin
og klagar sína nauð.
36.
Dúfan í Danmörk
hún er hlaðin baugum;
gull er hennar nefi á
allt upp undir augum.
37.
Tittlingur í mýri
tínir hann berin blá,
kemur hann heim á kvöldin
og kúrir mér hjá.
38.
Þei, þei og haf ei hátt
hér dunar undir,
er stigið ekki smátt
um fold og grundir.
39.
Gymbill mælti
og grét við stekkinn:
Nú er hún móðir mín
mjólkuð heima,
því ber ég svangan
um sumar langan
munn minn og maga
í mosaþúfu.
Gymbill eftir götu rann,
hvergi sína móður fann,
þá jarmaði hann.
40.
Lambið hún litla Móra,
lengi á hún að tóra,
þar til hún fæðir fjóra
fitjadilka stóra.
41.
Dagur líður, dimma fer,
dregst að nóttin svala;
myrkrið gerir mér og þér
marga byltu fala.
42.
Við skulum ekki hafa hátt,
hér er margt að ugga;
í allt kvöld hef ég andardrátt
úti heyrt á glugga.
43.
Silfukerin sökkva í sjó,
en soðbollarnir fljóta.
44.
Álfkona kveður við kú sína, sem komin er í eigu manna.
Lýr, lýr, vappar,
votir eru tappar,
illa gerði konan til ljúfrar Lappar.
45.
Kisa fór á lyngmó,
rjúpurnar elti,
setti hún upp sinn daggarhatt
og dynfjaðrabelti.
Hún var í rauðum skarlatsstakki
á berjamó,
með tinbelti föður síns
og tvenna skó.
46.
Krummi situr á kirkjuburst,
kallar hátt með sinni raust.
Vetur, sumar, vor og haust
vappar hann út um berjamó
með tinbelti föður síns
og tvenna nýja skó.
47.
Gangið þið heilar í hagann,
gerið engum bagann;
guð gefi ykkur gras í maga,
mjólk í spena, fisk í júgur, hold á bein.
Sankti María, sestu á stein.
Guð greiði götu mína,
geng ég svo heim.
48.
Guð láti sólina skína
yfir fagra fjallinu því.
sem hún Máría mjólkaði kúna sína.
49.
Gamli klárinn. Gráni.
Heimsálfurnar sjö hann sá,
hinar fjórar aldrei fann.
Fallegur er hann framan-á,
og fyrir aftan líkamann.
50.
Einu sinni voru karl og kerling í koti sínu,
þau áttu sér kálf,
og nú er sagan hálf;
hann hljóp út um víðan völl,
og nú er sagan öll.
51.
Sofðu bliða barnkind mín,
byrgðu aftur augun þín,
friðarins guð þér frelsi bjó,
fyrir það sofðu í góðri ró.
Geymi þín drottinn dýrðarhæstur
og dillidó.
52.
Týnd jól norðan fjalla.
Ólafur Muður! ætlarðu suður. Vel mun þer veita með kapalinn feita. Langt finnst mér langdegi, ljóst finnst mér skammdegi. Ræð ég þér, rangkjaftur: ríð þú heim í sveit aftur. Gyrtu þig betur, ef þú ætlar að róa í Stafnesi í vetur. Sit þú heil hin háva, hallveig á Bláfelli! Fáir kvöddu mig svo forðum, og farðu vel ljúfur hinn ljúfi. Líttu í austur, ljósum er riðið.
Samtal þeirra Ólafs og Hallveigar, skessu í Bláfelli, leysti hana úr álögum. Heil á húfi reyndist skessa álfkona. Jólin komu í leitirnar norðan heiða.
53.
Ég ætla bara, bara, bara, bara að fara milli bara, eða bara, bara, bara fara í geim, eða bara, bara, bara fara heim. (Haukur Morthens).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.8.2012 | 17:23
Mökkurkálfi inntur svars
Íslensk orðabók handa skólum og almenningi. Útgáfa Menningarsjóðs.
Skýringar styttar:
villingur, -s, -ar k. 1. óhemja, hömlulaus maður (einkum barn eða unglingur). 2. villimaður (viðauki: ekki villumaður) 3. mjög stygg sauðkind; ótaminn hestur; graðhestur.
villini-stígur k. villigata, villini stóð h. villt stóð.
Ergo: kynvilla, nær því sem segja á, og það veit meira að segja Guðbergur!
hugmynd kv. 1. það sem menn gera sér í hugarlund, hugsmíð: hugmynd en ekki veruleiki. 2. ætlun, meining hugmynd mín er sú; ég hef enga hugmynd um það, ég veit ekkert um það. 3. það sem e-m kemur í hug: góð hugmynd,; túlka h-ir sínar, h-snauður, sem dettur fátt í hug, skortir ímyndunarafl. 4. skynmynd, geymd í minni manns.
í-mynd kv. 1.eftirmynd: hann er lifandi í-mynd föður síns. 2. tákn, líki. 3. fulltrúi.
skap 1. gerð og samþætting tilfinningalífs einhvers, vitsmuna og vilja; geð, lund, skapferli. 2. hugur, hugarfar.
skapgerðarbrestur; veila, (allt að því geðveila)
hrekkur k. smjaður, fagurgali, hræsnisfullt lof, fleðulegt tal, skjall.
Shadow-boxing Counter Culture.
Dylan:
They say Eat drink and be merry take the bull by the horns I keep seeing visions of you, a lily among thorns Everything, looks a little far away to me. It is gettin´harder and harder to recognize the trap Too much information about nothin´ Too much educated rap Its just like you told me, just like you said it would be The moon is going up like wildfire I feel the breath og a storm There is something I got to do tonight You go inside and stay worm. Someone´s got a hold of my heart....You, you, you, got a hold of my hart.
Gotraufar og steyttir hnefar, fúllífi, ólifnaður, lausung, saurlifnaður. Menningarleysi má með ofstæki og þrákelkni meta jafngilt hvaða menningarefni öðru sem er, þó af ólíkum toga sé! Helgast af jafnréttis-og mannréttindakröfum, sem ekki er látið svo lítið með nýuppfundið. Ekki hvað síst ef á þykir halla hégómaskapinn! Hundspott, úrhrök, hrakmenni eru engin lömb að leika við. Telst vart tómt grín að lenda í hundkjafti og heita hundspott fyrir útreiðina. Á afkiminn að snúast um miðjuna eða miðjan um afkimann?
Hjá lygnri móðu
Hjá lygnri móðu í geislaglóð
við græna kofann,
hann sá hvar hún stóð hið fríða fljóð
fráhneppt að ofan.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima,
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
Á hann leit hún æskuteitu
auga forðum,
það var kvöld í sveit og hún kvaddi hann veit ég
kærleiksorðum.
Mitt er þitt o.sfrv.
Innst í hjarta augað bjarta
og orðið góða
hann geymir sem skart uns grafarhúm svart
mun gestum bjóða.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima,
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
H.K.L.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.8.2012 | 13:54
Fljótsdrög í mynd leitarmanns
Fljótsdrög í mynd leitarmanns
Réttarvatn
Efst á Arnarvatnshæðum
oft hef ég fáki beitt.
Þar er allt þakið vötnum,
þar er Réttarvatn eitt.
Og undir Norðurásnum
er ofurlítil tó,
og lækur líður þar niður
um lágan Hvannamó.
Á engum stað ég uni
eins vel og þessum mér.
Ískaldur Eiríksjökull
veit allt, sem talað er hér.
Jónas
Norðlingafljót er ein af upptakakvíslum Hvítár í Borgarfirði, og sú þeirra, sem hefur lengstan aðdraganda. Norðlingafljót kemur upp í Fljótsdrögum við norðvestanverðan Langjökul, og dregur til sín vatn af sunnanverðri Arnarvatnsheiði, og undan Hallmundarhrauni. Fellur það í Hvítá skammt fyrir neðan efstu byggð í Mýrasýslu, skammt undan Tungusporði, gegnt Húsafelli. Rennur það með norðujaðri Hallmundarhrauns og síðan um Gráhraun. Vatn þess ódrýgist er það fellur um gropin hraunin. Vatnið kemur aftur fram í dagsljósið í fossandi lindum, til dæmis í Hraunfossum hjá Barnafossi.
Landið þitt Ísland Steindór frá Hlöðum
Talið var fyrr á árum, að heimalönd Grímstungu og Kalmannstungu næðu saman, þótt enginn vissi glöggt hvar landamerkin lægju, og vita varla enn.
Sunnanvert við Grímstunguheiði hækkar landið að mun og er þar víðáttumikil, gróðurlítil og hrjóstrug öræfi 600-850 metra hæð yfir sjó. Þetta svæði kallast einu nafni Stórisandur (Yfir kaldan eyðisand... Fjallaskáldið á leið í skóla: JB) og nær allt suður til Langjökuls og Fljótsdraga. Lækir og kvíslar falla víða til norðurs af Sandi og eru mestu vatnsföllin Vatnsdalsá og Álftaskálará og koma saman fremst í Vatnsdal.
Suðvestan Bláfells heitir hæðarás Langijörvi... Þaðan suður af taka Fljótsdrög við, víðáttumikið flatlendi í 500 metra hæð, og nær til Langjökuls og Hallmundarhrauns að austan og sunnan.
Úr Fljótsdrögum fellur Norðlingafljót til Borgarfjarðar. Þarna er náttúrufegurð mikil. Langjökull og Eiríksjökull mynda bogaumgjörð um Drögin frá austri til suðvesturs með dökkar hraunborgir innst í boganum. Fjöldi álfta hefst þarna við á sumrum, en einnig lómar og himbrimar.
Sól er farið að halla til norðurs, jöklarnir blasa við skínandi bjartir með dökkum stöllum og klettabríkum í hlíðunum upp úr freranum. Skriðjökulsfossar Eiríksjökuls geifla granir og skella köldum kossum á úfið og grett Hallmundarhraun. Kvíslar og dökkir sandar efstu Fljótdraga skiptast á, og til vesturs virðist víðátta grænna heiðanna endalaus. Þetta eru sumardraumarnir hans Ásgríms.
Hestarnir gerast nú sporléttari. Þeir eiga líka sitt óskaland sunnan við Sand og finna, að þeir nálgast það. Sulturinn er farinn að segja til sín eftir hagleysið á Sandi. Þeir vita um sinn glólund með gras og svalalind í Fljótsdragtanga.
Ágúst frá Hofi, Örn og Örlygur 1970
Eyrarrósin á sér stað í urð og grjóti;
sveigir höfuð suður í móti
svo hún birtu dagsins njóti.
Njörður P. Njarðvík
Bloggar | Breytt 8.8.2012 kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2012 | 14:06
Kompa
Ímynd, hindurvitni, fordómar, hluttekning, fagmennska, hlutleysi, formúlur, absolut, endanlegt innan eigin upphafs.
Í mynd
Árni Hjartarson; Þórhallur Vilmundarson, Páll Bergþórsson, Þorvaldur holbarki, Smiðskellssynir, og snarpheitur Surtshellir. Hallmundarkviða, Grettla, Bergbúaþáttur, Hellismannasögur, Ólafur Briem og Þorsteinn frá Hamri, Ágúst frá Hofi.
Lýsti sól stjörnustól; eldgos á 10. öld í Langjökli, á landnámsöld, í Eldgjá á afrétti Skaftfellinga og á Suðurnesjum (Hvenær brann sá eldur o.s.frv.) geislamælingar, öskugreining. Sérlega hugkvæm og stórskemmtileg úttekt Árna Hjartarsonar jarðfræðings: efni á dagskrárlager RÚV.
Er ímynd hindurvitni, hluttekning fordómar, hlutleysi fagmennska formúlur absólút, endanlegt innan eigin upphafs? Er tími löngu til kominn, eins og löngum er viðkvæði,
að sjálfur endaþarmurinn fái uppreisn æru (endanleg getnaðarvörn); alger aftenging kynlífs og getnaðar; og yfirhönd karlkynsins í móðurhlutverki, perverssjón bræðralagsins, femínisminn og girndaraugað, áhugi öldunga af báðum kynjum á umskorinni móðir jörð; Fata Morgana í eyðimörkinni, réttur dýra og virðing fyrir þeim, réttur og virðing fyrir gróðri jarðar og mold, ómenguðum saur, jafnt tillit tekið til mengaðs úrgangs og perversjóna, en tíminn vinnur sitt verk á tísku og tíðaranda, formúlur eiga undir högg að sækja stefni þær öllu kviku í afmánun, hverfuleikans órar, tíska, uppvöxtur lífs og hnignun, lífið sjálft hlúir að sér sjálfu, aulabrandari og þjáning í forhertum gleðskap ef leitað er lúsa meðan geipað er og gasprað um yfirtökutilboð (outdate- outdating) þess, sem er nýjasta nýtt í tómleikans sölum, doða munaðarlausra státinna hugmynda í kallsambandi við hafið dökka og hamravegginn klúra, haukfrána bráð í haukfránni borg allra borga. Ráðlagður dagskammtur: sætabrauð á morgnana og serius á kvökdin.
Hugmynd: hugurinn gerir sér mynd af sjálfum sér og öðru. Hugmynd má koma í verk og í verð, inn í heiminn, jafnvel rúlla yfir hann til að fullnægja kröfunni um fullnægju ofar öðru. Allt jafn gilt vísar leið. Gott og illt? Sigur tryggir einn niðurstöðu, lýðræði kosturinn, upp með hendur og allavegana. Aðrar kvaðir engar. Engar tilslakanir að heldur að klaga yfir. Verði öllum að góðu. Og gjörið svo vel. Sjáumst í seinna stríði börnin góð!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.7.2012 | 18:18
Fagrar heyrði ég raddirnar: Horfumst við í augu...
Horfumst við í augu, sem grámyglur tvær:
Sá skal vera músin, sem mælir,
kötturinn, sem sig skælir,
fíflið, sem fyrr hlær,
folaldið, sem fyrr lítur undan,
og skrímslið, sem skína lætur í tennurnar.
Bæir á Skarðsströnd vestur:
Rýkur á Krossi, rýkur á Á
rýkur í Frakkanesi.
Reynikeldu rýkur á,
rýkur á melum og Ballará.
Liggur þú þar Ingjaldur einn í læstum skála.
Nú er sá kominn, sem geldur köppum kóngsins harðan mála.
Draugur í Draugahelli undir Jökli, útróðrarkarl frá 16. öld. Sjá Þórð Halldórsson frá Dagverðará. Skráning: Loftur Guðmundsson.
Leiðist mér að liggja hér í ljótum helli;
betra er heima á Helgafelli
að hafa þar dans og glímuskelli.
Ein væn
lifrauð
laufgræn
reyniviðarhrísla
stendur í miðjum Vaglaskógi.
Þjóðkvæði og stef. E,Ó.S. 1974
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2012 | 19:03
Danse Macabre
Sakir ónógrar svölunar ytri veruleika, rótlauss menntunarleysis, magnaðist upp græðgi ímyndunaraflsins (Þórbergur, E.Ó.S.) á snarsnúningi um sjálfa sig; miðja í jaðri óbundin af brýnum viðfangsefnum ytri heims og veruleika. Hverskyns tilburðir í doða, tómi og tilheyrandi tilfinningauppnámi síðustu og verstu, órar, hugmyndir, atvik, atburðir, þykir skipta nokkru máli, skapi nýja og nýja dulu að dansa í Danse Macabre. Yfir trónir markaðsfræði, massa media, lýðræði sans misére, opið í báða enda ungum stúlkum og drengjum til nokkurs angurs. 360 milljón ára saga hryggdýra á þurru landi. Grindhvalur í fréttum, hinir lukkulegustu á balli þessa stundina, 28/7, í Innri Njarðvík.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)