Færsluflokkur: Bloggar
29.11.2016 | 23:01
Eigi má sköpum renna
Af tvennu illu hlýnun jarðar eða kólnun. 1782, hafís umkringir Ísland, litla ísöld. Hvað veldur? Um líkt leiti Tamseá ísilögð. Hvernig viðraði um 700; hlýviðrisskeið, litla ísöld skammt undan, fimm aldir, fimbulkuldi lætur undan síga um 10 þúsund ár fyrir upphaf tímatals vors. Kjörviður gæti vaxið oss yfir höfuð. Þarf fannfergi að leggjast yfir Evrópu til þess að Sahara grói upp? Hvernig væri að starta logni. 1579: Hollenskir hvalveiðimenn ræna, drepa og nauðga víða á Vestfjörðum. Tóku Eggert Hannesson á Bæ og höfðu í haldi þar til ættmenn hans greiddu geysimikið lausnarfé. 1614: Enskir víkingar fara með ofbeldi og ránum um Vestmannaeyjar. Stálu m.a. klukkum Landakirkju. 1615: Baskavígin. Yfir þrjátíu spænskir hvalveiðimenn vegnir á Vestfjörðum. 1627: Tyrkjaránið, Vér upplifum hitaskeið á ísöld. Kuldaskeið eru þrásetnari en hlýviðrisskeið; hýindaskeið. endast í 10 til 1200 ár. Er brigða að vænta? Prógress er prócess, prócess ekki endilega prógress.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2016 | 14:01
Íslensk tunga
Metnaður, íslensk tunga, málkennd, þjóðerniskennd, vöruflutningar, U.S. county jail, U.K., bjöguð málkennd, metnaðarlaus þrákelkni; trosnar ef til vill upp á milli kynslóða. Þolmyhd og beygingarkerfið á sinn markaða bás; skriplar þar hver á skötu og steinrotast, vaknar úr rotinu og mælir á sínu blendingsmáli: hregg. Umbylting, að halda að ósekju til jafns við risalíkön, megastrúktúra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2016 | 12:28
Almanakið
Verkalýður í metropolis, vöruframleiðsla og eftirspurn á heimsvísu. Trick or treat, hrekkjavaka - gleiðgosaleg ærsl, glens og gaman, kynbundið undur, nema hvað. Allra heilagra messa, allra sálna messa. Karnival í byrjun páskaföstu.
Heimsálfurnar sjö hann sá
hinar fjórar aldrei fann,
fallegur er hann framan á
og fyrir aftan líkamann.
(Gráni gamli)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2016 | 17:38
Brotið í blað
Núþálegar sagnir: eiga, mega, knega, unna, muna, munu, skulu, þurfa, vita vilja.
De profundis clamavi
Hvort ráða megir rökum dýrum
þótt rofin deili grið kosti
á djúpu c-i drynur ýtum snjöllum
daggarhylur tær og ymur í fjöllum.
Fagrar heyrði ég raddir úr Niflungaheim,
Ég fæ ekki sofið fyrir söngvunum þeim.
JB
Reiði goðanna.
Einherjar á Iðavelli
efna í feikna hurðaskelli;
snarast um gættir snilldar halur
snefsinn mjög og guði falur.
JB
Tvítugsafmælisheillaósk
Heill ungum hal
höldagram, tvítugsessu.
Kuggur fremri keisara, páfa,
konungsnautur stilltur vel.
fídonsbráin silkistél.
JB
Tónmál í skógi
Kyrjaði horskur í haldi erfðafjenda heitingar og níð
þá blóðgir bútuðu hal frá beini og átu lifandi.
Tvílráðir heita á, hver veit svo gjörla og yfrið þiggur,
dátt áður döggfall drýpur undir rauðann og jörð tinar.
JB
Rok er rok, stormur stormur og hún skúriin á Veðurstofu Íslands.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2016 | 16:59
Guðsorð í hljóðri bæn
Biðjið og yður mun gefast,
leitið og þér munuð finna
knýið á og fyrir yður mun upplokið verða.
Því að hver sá öðlast sem biður,
sá finnur, sem leitar,
og fyrir þeim, sem á knýr, mun upplokið verða.
(Mt. 7,7-8)
Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um
neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar
kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.
Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi,
mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.
(FI 4.5-7)
Sálmabók íslensku kirkjunnar 2001 bls. 564 Bænabók.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2016 | 16:49
Guðsorð í hljóðri bæn
Biðjið og yður mun gefast,
leitið og þér munuð finna
knýið á og fyrir yður mun upplokið verða.
Því að hver sá öðlast sem biður,
sá finnur, sem leitar,
og fyrir þeim, sem á knýr, mun upplokið verða.
(Mt. 7,7-8)
Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um
neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar
kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð.
Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi,
mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú. (
FI 4.5-7)
Sálmabók íslensku kirkjunnar 2001 bls. 564 Bænabók.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2016 | 17:57
Bitamunur ekki byrði
Í ágúst
Við Vatnskotstúnið hímir bleikur hestur.
Ég heilsaði onum kunnuglegur í bragði;
það á hann sjálfsagt einhver næturgestur.
Hann leit á mig og þekti mig og þagði.
Á þjóðveginum
Á morgun ó og aska, hí og hæ
og ha og uss og pú og kanski og sei, sei
og korriró og amen, bí og bæ
og bösl í hnasli, sýsl í rusli og þey þey.
Þingvallavegurinn
Hér hefur veisla varað þúsund ár
og varir meðan æruprísinn sprettur,
bláklukkan fellir dulræn döggvartár
og deplar auga mófuglsúnginn nettur.
Fyrir sunnan söl og þara
sé ég hvíta örnu fara;
ber við dagssól blóðgan ara.
(Bona sera mia cara: innskot.)
Halldór Kiljan Laxnes.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2016 | 15:06
Úr kvæðakveri
Hjá lygnri móðu í geislaglóð
við græna kofann;
hann sá hvar hún stóð hið fríða fljóð
fráhnept að ofan.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima;
víst skaltu öllum veraldasorgum gleyma.
hann leit hún æskuteitu auga forðum,
það var kvöld í sveit og hún kvaddi hann veit ég
kærleiksorðum.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima;
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
Innst í hjarta augað bjarta
og orðið góða
hann geymir sem skart uns grafarhúm svart
mun gestum bjóða.
Mitt er þitt og hjá mér áttu heima;
víst skaltu öllum veraldarsorgum gleyma.
HKL.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2016 | 15:11
Reislur kvarðar
Lömb, kið, grísir, kálfar, folöld, kjúklingar,/ ungabörn, hvolpar, kettlingar. Glýja, klígja, trauma, erotica.
Hvort ráða megir rökum dýrum,
þó rofin deili grið kosti.
Á djúpu C- i drynur ýtum snjöllum
daggarhylur tær
svo ymur í fjöllum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2016 | 18:42
Stikur
Það skýst skuggi í kjarri, það blikar í laufi... lögmál viðfangsefnisins; að skapa aðstæður, að vinna, að sníða, smíða, yrkja, semja, mála, M A kvartett, Smárakvartett. Bragur Steins Steinars kúbískur. Ferð án fyrirheits, eilífðarlífið/kommónisminn. Náð, miskun, fyrirgefning. Bagdadi, íslamska ríkið. Fíflska, siðblinda. Tallahassee, stjórnsetur Flórida. Leidd er kýrin út úr fjósi/sólin skín á skuldirnar (Jóhannes úr Kötlum).
Artimis Akteon sjónarvottur
Kvíði og tilhlökkun; sami banallinn; fylgjur úr afréttinni á kreiki, dýrin þokkafull og stolt. La femme fatale, gyðjan grípur úr handraða heytuggu handa dýrum á ofboðsflótta undan óðum byssuvörgum. Ásetningur, afbrýði; fegurðarauki sem í fölskva ei rennur, þokki heima í seli, í gerði heima á byggðu bóli.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)